2.10.2006 | 20:45
Hvað er eiginlega að?
Ólafur Ragnar Grímsson flutti ræðu við setningu Alþingis og talaði um að virkjun náttúrunnar gæti orðið svipað hitamál og vera hersins á Miðnesheiði. Hittir forsetinn þar naglann á höfuðið? Já, í raun má segja að Ólafur hafi þarna greint kjarnann frá hisminu. Hvað gerum við þegar virkjunin deyr, þegar álframleiðsla verður lögð niður á Austurlandi?
Jakkafataklæddu karlarnir í Alcoa munu hafa fjárfest sínum peningum í einhverju öðru ábótasömu, þeir geta lifað náðugu lífi þótt ein virkjun til eða frá leggist af. Hvað þá í einum af útnára heimsins. Þeir hundruðu sem missa vinnuna sína þá verða að leggja höfuðið í bleyti, hugsa um einhver önnur ráð sem tengjast ekki stóriðju. Rétt eins og hefði átt að gera í upphafi.
Mistökin liggja fyrst og fremst hjá landsbyggðarstefnu stjórnvalda. Algjört skeytingarleysi gagnvart þeim sem byggja sveitirnar og hinar fámennu byggðir. Til álversins í Reyðarfirði hefði aldrei þurft að grípa ef menn hefðu ekki hugsað svona mikið um mölina við Faxaflóa. Um eigið rassgat.
Kynslóðirnar á undan okkur svikust um og þeirra mistök bitna á þessari kynslóð sem nú byggir landið, rétt eins og Kárahnjúkar eiga eftir að verða vandamál komandi kynslóða. Rétt eins og brottför hersins er vandamálið okkar. Og þar hitti Ólafur svo sannarlega á naglann þegar hann setti Alþingi Íslands sem samþykkti þetta allt saman, bæði her og virkjun.
Eldri færslur
Bloggvinir
Tenglar
Allt sem skiptir máli
- Fyrir austan tala þeir um...
- Vesturlandinu gerð skil
- Þetta er helst fyrir vestan
- Aðstoðarmaðurinn fyrrverandi
- Misjafnlega gott íslenskt slúður
- Með sunnudagskaffinu
- NFS...líka á netinu
- Morgunblaðið..á netinu
- Fyrir meinlokurnar
- Íslenskar kvikmyndafréttir
- Hin eina og sanna
- Handboltahetjan
- Eðlukóngurinn
- Allt um boltann
- Slúðrið frá Bretlandi
- Fréttaveita af bestu gerð
- Sigursælasta lið í heimi
Af mbl.is
Erlent
- Íranir svara Trump á samfélagsmiðlum
- Yfirvöld á Ítalíu gefa út rauða viðvörun
- Segist hafa bjargað lífi Khamenei
- Norðmenn framselja mann til Rúanda
- Þurfa ekki að sitja kennslustundir um kynvitund
- Danir spá fyrir um íslaus sumur á norðurskautinu
- Dómurum óheimilt að stöðva tilskipanir Trumps
- Twitter-morðinginn hengdur
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.