Leita í fréttum mbl.is

Guantanamo: Helför nútímans

GuantanamoGuantanamo - fangelsið á Kúbu er eitthvað besta dæmið um að stríðið gegn hryðjuverkum fór úr böndunum um leið og til þess var stofnað. Fyrir skömmu hingað tveir fangar, þeir Ruhal Ahmed og Asif Iqbal, og lýstu veru sinni á staðnum sem oft er nefndur Helvíti á jörð.

Kvikmyndin The Road to Guantanamo segir frá Tripton - þrímenningunum sem í "fíflaskap" eins og einn þeirra orðaði það í viðtali héldu til Afganistan en lentu þar í miðri árás Bandaríkjamanna og voru teknir til fanga, grunaðir um að vera handabendi Al Kaída.

Lýsingar Ahmed og Iqbal voru skelfilegar. Í raun er það hálf ótrúlegt að eitthvert vestrænt ríki skuli ekki enn hafa slitið stjórnmálasambandi við Bandaríkin vegna þessa máls. Ætli peningar og völd hafi blindað mennina sem stjórna heiminum. Bandaríkin eru jú eitt öflugasta hernaðarríki heims og án nokkurs vafa eitt það valdamesta.  Úr því að Davíð er hættur er engin hætta á að hann styggi "besta vininn" sinn.george_w_bush

Nú eru Kanarnir loksins farnir frá Keflavík, kannski ætti þetta herlausa land að segja þeim aðeins til syndanna, heimta lokun Guantanamo að öðrum kosti geti Kaninn hypjað sér í burtu. En kannski er stundum betra að loka augunum, trúa í blindni á þetta ofnotaða frelsishugtak sem er sveipað einhverjum dýrðarljóma hjá Ameríkunni. Hugsa bara eins og flestir aðrir stjórnendur Evrópu; Guantanamo á eftir að hverfa, gleymast enda er sagan ætíð skrifuð af sigurvegurum, ekki af þeim sem sitja í Guantanamo.

Eflaust hafa einhverjir hugsað slíkt hið sama þegar Þjóðverjar sendu milljónir Gyðinga í útrýmingabúðirnar.  Helförin gleymist bara en það er í raun eina vandamálið við hugtakið "Saga". Hún gleymist aldrei, fyrnist ekkert. Þegar fram líða stundir verður listi hinna staðföstu þjóða hengdur uppá safni fyrir komandi kynslóðir sem merki um það hversu múgsefjun í alþjóðasamfélagi er hættuleg frelsinu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Freyr Gígja Gunnarsson
Blaðamaður, golfari og sjúklegur aðdáandi enska knattspyrnuliðsins Liverpool. Umfram allt húsbóndi á Hjarðarhaga 46 þar sem húsfreyjan Júlía Margrét ræður ríkjum.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband