23.11.2006 | 02:23
Gorgy Park: Sönn eđa login?
Mál rússneska leyniţjónustumannsins Alexanders Litvinenko hefur vakiđ mikla athygli en frá ţví var greint í breskum fjölmiđlum ađ á enskum spítala lćgi einn fremsti njósnari gamla stórveldisins milli heims og helju eftir ađ reynt hafđi veriđ ađ eitra fyrir honum. Litvinenko hefur veriđ duglegur viđ ađ reyna koma sök á rússneska ríkisstjórnina og reynt ađ sanna á hana margvísleg illvirki. Rússneska leyniţjónustan SVR neitar öllu og segist ekki hafa reynt ađ koma Litvinenko fyrir kattarnef. Hlutverk Litvinenko innan rússnesku leyniţjónustunnar var ađ komast inní hryđjuverkahópa og upprćta ţá ađ innan, ekki ósvipađ og Jack Bauer gerir međ góđum árangri í sjónvarpsţáttunum 24.
Máliđ á eftir ađ beina kastljósinu enn og aftur ađ Vladimir Pútin, forseta rússneska lýđveldisins. Litla sem engar fréttir berast frá ţessu stćrsta landi Evrópu annađ en í gegnum vafasamar handtökur ţekktra viđskiptajöfra og ótrúlegan uppgang annara sem eiga augljóslega hönk uppí bakiđ á forsetanum. Nćgir ţar ađ nefna Roman Abramotvitjs sem nú á Chelsea og olíulindir í gömlum sóvétlýđveldum(forvitnilegt ađ Björgólfur skuli hafa keypt West Ham í ljósi umrćđunnar í Ekstrablađinu um meint tengsl íslenskra fjárfesta viđ rússnesku mafíuna og ţá ekk síđur vegna ţess ađ Roman á stóran hlut í ţví fyrirtćki sem á Argentínumennina tvo).
Sjálfur er Pútín fyrrum yfirmađur KGB og ţykir hafa sýnt sífellt meiri einrćđistilburđi eftir ţví sem hefur liđiđ á valdatíma hans. Erfitt er ađ sjá hver gćti tekiđ viđ af Pútín en ekki verđur horft framhjá ţví ađ stórveldiđ í vestri er hrćtt viđ ţennan lágvaxna, hálfsköllótta Rússa og ţví eru Rússar ágćtis mótvćgi viđ heimsvaldastefnu Bandaríkjanna.
Pútín hefur hins vegar margoft gerst sekur um ađ fórna meiru fyrir minna og nćgir ţar ađ nefna stríđiđ í Tjsetníu og gerir rithöfundurinn Tom Egland ţví hugarástandi sem ţar ríkir ágćtis skil í hinum prýđilega reyfara "Nótt Úlfanna". Pútín studdi innrás Bandaríkjahers í Afganistan en ţegar ţví stríđi lauk hefur lítiđ heyrst af stuđningi risans í austri. Pútin hefur líka í nógu ađ snúast heimafyrir. Spillingin eykst nánast međ degi hverjum, fátćktin er mikil og glćpamenn ráđa ţví sem ţeir vilja ráđa. Pútín virđist heldur ekki eiga auđvelt međ ađ losa sig viđ fortíđ sína sem yfirmađur KGB og einn mađur orđađi ţađ svo ađ Pútín drćgi á eftir sér ansi ţunga ferđatösku af líkum.
Hvort Pútín hafi eitthvađ međ eitrun leyniţjónustumannsins ađ gera verđur vafalítiđ aldrei hćgt ađ sanna. Árásin á Litvenenko er hins vegar ágćtis sönnun á ađ eitthvađ er rotiđ í Rússaveldi.
Eldri fćrslur
Bloggvinir
Tenglar
Allt sem skiptir máli
- Fyrir austan tala þeir um...
- Vesturlandinu gerð skil
- Þetta er helst fyrir vestan
- Aðstoðarmaðurinn fyrrverandi
- Misjafnlega gott íslenskt slúður
- Með sunnudagskaffinu
- NFS...líka á netinu
- Morgunblaðið..á netinu
- Fyrir meinlokurnar
- Íslenskar kvikmyndafréttir
- Hin eina og sanna
- Handboltahetjan
- Eðlukóngurinn
- Allt um boltann
- Slúðrið frá Bretlandi
- Fréttaveita af bestu gerð
- Sigursælasta lið í heimi
Af mbl.is
Erlent
- Twitter-morđinginn hengdur
- Palestine Action skipuleggja skemmdarverk
- Viđvararnir á Ítalíu vegna hitabylgju
- Temu og AliExpress hćtti sölu ákveđinna barnavara
- Bandarískir biblíuvinir handteknir í S-Kóreu
- Dregur frumvarpiđ umdeilda til baka
- Hugmyndaauđgi viđ NATO-bókhaldsbrellur
- Merz og Macron hvetja til samninga viđ Bandaríkin
- Trump stöđvar flćđi ólöglegra innflytjenda
- Segir auđgunarskilvindur Fordó ónýtar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.