Leita í fréttum mbl.is

Og meira af stjörnum

Fjöldi fólks safnaðist fyrir í miðborg Reykjavíkur til að sjá borgina myrkvaða. Borgarbúar voru flestir hverjir með á nótunum og slökktu ljósin en stórfyrirtækin sáu ekki ástæðu til að taka þátt og létu neon - skiltin lýsa upp himininn...stjörnuskin er mjög veikt og áttu því ekki roð í ljósin frá kapítalismanum. 

Skýjað var í borginni og því sáust engar stjörnur nema þá kannski á Hótel Borg þar sem menningarelítan safnaðist fyrir og drakk frítt... sannast þar hið fornkveðna að listamenn eru fátækir og þiggja með glöðu geði fría drykki.  Þarna voru Ágúst Guðmundsson, Andri Snær og Sigurður Pálsson, áhættusamt hjá Hrönn Marínósdóttir og RIFF, hvað hefði orðið um menningu landsins ef slys hefði orðið á Hótel Borg. Þegar konungsfólkið kemur saman er oft talað um að það hringli í skartgripunum en þarna hringlaði í heilasellunum...

Fyrir þá sem hafa ekki enn séð stjörnubjartan himinn skal þeim bent á að keyra útfyrir bæinn, kannski klukkutíma eða svo, hita kaffi og bíða eftir að stjörnurnar kvikni á himinhvolfinu, mögnuð sjón sem engan svíkur.

Myrkvunin vakti mikla athygli í fjölmiðlum um allan heim og fjölluðu fréttavefir á borð við BBC, Washington Post og Aftonposten um þennan merkilega viðburð sem verður vonandi endurtekin að ári...

stjörnur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Freyr Gígja Gunnarsson
Blaðamaður, golfari og sjúklegur aðdáandi enska knattspyrnuliðsins Liverpool. Umfram allt húsbóndi á Hjarðarhaga 46 þar sem húsfreyjan Júlía Margrét ræður ríkjum.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband