Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007
13.1.2007 | 14:50
Kosningarnar hefjast fyrir alvöru
Þingið kemur saman á mánudag eftir (langt) jólafrí. Þingmennirnir hafa verið á fleygiferð um kjördæmin við að kynna sjálfan sig, áherslumálin og ekki síst flokkinn sinn. Þingið núna verður eflaust með skrautlegra móti enda af nógu að taka, stjórnarandstaðan vill ekki selja RÚV, innflytjendamálin verða ofarlega á baugi og má reikna með heitum umræðum þegar þingmenn Frjálslyndra stíga í pontu (kosningaþingið byrjar reyndar ekkert sérstaklega vel fyrir þá þar sem Margrét Sverrisdóttir biðlaði nýlega til fjölmiðla að þeir skoðuðu ásakanir frá aðilum Nýs Afls á Útvarpi Sögu).
Ríkisútvarpið verður mikið hitamál enda sýnist sitt hverjum um hvort selja eigi þessa ríkisstofnun. Ríkisstjórnin virðist sannfærð um að láta reyna á þetta en stjórnarandstaðan getur ekki hugsað sér á sjá eftir þessari "menningarstofnun". Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verður því áberandi enda eflaust erfitt fyrir menningarmálaráðherrann að mæla þessu bót með sannfærandi hætti.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verður í sunnudagsviðtali við Morgunblaðið en formanninum er nokkur vandi á höndum. Vinstri Grænir og Sjálfstæðisflokkurinn hafa sameinast um andstöðuna gegn aðild að Evrópusambandinu og eini haukurinn í horninu þar er Framsóknarflokkurinn sem Samfylkingin vill að hverfi.
Pétur Gunnarsson benti réttilega á í Kastljósi föstudagsins að oftast snúast kosningar ekki um einstök mál heldur hverjum þjóðin treystir best til að stýra þjóðarskútunni sem hefur siglt lygnan sjó að undanförnu.
Innflytjendamálin koma þó til með að vera ofarlega á baugi auk stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar (sem engin vill reyndar viðurkenna). Stækkun Alcan ratar eflaust alla leið inná Austurvöll, álver í Helguvík og svona mætti lengi telja. Steingrími J. Sigfússyni er eflaust farið að klæja í puttana en hann er í vanda staddur í eigin flokki eftir að varaformaðurinn gerði sig sekan um vandræðalega lélegan brandara Til gamans má geta að landsliðsþjálfarar í Englandi hafa verið reknir fyrir minna og nægir þar að minnast örlaga Glenn Hoddle.
Þegar öllu er á botninn hvolft verður þingið umfram allt eldfimmt og hálfgerð púðurtunna enda virðist hver höndin uppá móti hvor annarri.
Vorþing hefst á mánudag með umræðum um RÚV ohf. | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2007 | 00:57
Auðmennirnir hneyksla
Á blogginu hafa netverjar kosið að senda auðmönnum landsins tóninn eftir að Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupþings í London, ákvað að bjóða Duran Duran í partý hjá sér. Reyndar fengu Simon Le Bon og félagar þrjátíu og fimm milljónir fyrir að láta sjá sig með hljóðfærin sín og hituðu upp fyrir íslenska tónlistarmenn á borð við Björgvin Halldórsson, Regínu Ósk og Eyjólf Kristjánsson.
Sumir segja þetta vera siðferðislaust af auðmönnunum og að þeir ættu ekki að vera nota launin sín í að halda svona veislur. Ég man vel eftir því þegar Þorvaldur Guðmundsson í Síld & Fisk safnaði listaverkum og fjölmiðlar landsins höfðu fátt við það athuga sem og almenningur. Var Þorvaldur ekki að berast á eins og ´80 kynslóðin gerir nú?
Merkilegt hversu erfitt bessevissarar þjóðarinnar eiga erfitt með að sætta sig við það að hér ríkir kapítalískt hagkerfi þar sem sumir verða ríkari en aðrir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2007 | 00:40
Snillingurinn Depp
Athyglisvert verður að sjá hvern Depp fær til að leika aðalhlutverkið, væntanlega kemur Tim Burton ekki til greina þótt það væri efa forvitnilegt að sjá hvernig hinn sérlundaði leikstjóri myndi takast á við spennumynd af gamla skólanum. Gore Verbinski hefur starfað með Depp í sjóræningjamyndunum þremur og kemst á listann hjá Depp.
Johnny Depp framleiðir mynd um dauða Litvinenkós | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2007 | 00:32
Hinn stríðsherrann
Tony Blair er ein mestu vonbrigði stjórnmálasögunnar. Þessi stjórnmálamaður leit vel út þegar hann tók við breska veldinu af John Mayjor og íhaldsflokknum árið 1997. Þá ætlaði Blair að rífa þetta forna heimsveldi uppúr öskustónni og fékk til liðs við sig poppara í þeim erindagjörðum að gera landið aftur "hipp og kúl". Herbragðið heppnaðist fullkomlega og allt í einu vildi heimsbyggðin vera eins og tjallinn.
Í dag eru fáir í tónlistarheiminum sem vilja láta spyrða sig við Blair og stuðning hans við herforingja vestursins, George W. Bush. Tony Blair hefur misst sjónar af því sem hann upphaflega var og verður því miður minnnst fyrir að vera skósveinn W. Ágætis mynd af hinum "original" Blair má sjá í kvikmyndinni The Queen sem nýlega fékk tíu tilnefningar til Bafta-verðlauna.
Blair hefur goldið fyrir afstöðu sína til Íraksstríðsins og leitt þjóð sína útí óvinnanlegt stríð (Hvernig dettur þessum tveimur mönnum eiginlega í hug að hægt sé að hafa sigur gegn hryðjuverkum?) Fyrir hvern og einn öfgamann sem fellur sprettur annar upp úr frjóum jarðvegi í Mið- Austurlöndum. Hatrið gegn vestrinu eykst með hverjum degi og nú þegar bæði Bush og Blair hafa tilkynnt um auka við heraflann og styrkja varnir landanna er ljóst að baráttan á dalnum á bara eftir að harðna.
Blair geldur fyrir stríðsrekstur sinn með starfi sínu og því verður spennandi að sjá hvort Bretar kjósa að halda áfram baráttunni gegn hryðjuverkum eða frið á öllum vígstöðvum.
Blair: Meira fé veitt til hernaðarmála | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2007 | 23:58
Blogg eru fjölmiðll úrskurðar hæstiréttur Bandaríkjanna
Nú verður sko heldur betur kátt í höllinni hjá bloggfréttariturum Íslands sem lengi hafa haldið því fram að þeir séu fullgildir meðlimir í fréttaheiminum. Hvað skyldu til að mynda Steingrímur Sævarr eða Ómar R. Valdimarsson segja um þetta? Þegar stórt er spurt...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.1.2007 | 23:18
Hluti af okkar samfélagi
Einu sinni var því fleygt fram að hluti af því að vera Íslendingur væri að hafa farið á sjó, byggt sér hús og eignast jeppa. Nú fer enginn lengur á sjó, húsin eru byggð af útlendingum en jepparnir standa eftir í þessari ágætu jöfnu um þjóðernið.
Hluti af því að vera Íslendingur í dag er hins vegar að hafa lent í kennaraverkfalli. Vorið 1999 geisaði kennaraverkfallið langa hjá framhaldsskólakennerum og ég bjóst svo sannarlega við því að þurfa ekkert að fara í Flensborg þá önnina. Sex vikur og samnemendur mínir drukku bjór í húsi Alþýðubandalagsins í Hafnafirði. Fyrstu vikurnar fór ég samviskusamlega á bókasafnið og lærði...já, einu sinni var ég nörd (og er það enn). Gafst fljótlega uppá því og fór á Súfistan til að reykja í laumi, sígarettur frá öðrum. Með stolti gat ég þó sagt að ég var Íslendingur enda hafði ég þá bókað mig í vinnu hjá Höfninni í Hafnafirði um sumarið sem er það næsta sem ég hef komist sjómennsku á mínu lífi - ef undanskildar eru sjóferðirnar með afa á Sómabátnum Snarpi í barnæsku.
Kennaraverkföll á Íslandi eru jafn stór hluti af íslensku samfélagi og mótmæli hjá Frökkum, bjórdrykkja hjá Dönum og lélegur húmor Svía eða Norðmanna. Engum þarf því að koma á óvart þó að blessaðir kennararnir fari einu sinni og einu sinni í verkfall enda hefur þetta ágæta þjóðfélag aldrei borið virðingu fyrir þessari stétt sem er þó ábyrg fyrir uppeldi barna okkar að stóru leyti.
Kennarar krefjast leiðréttingar á launum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2007 | 23:05
Peter og New Line í stríð...aftur
Fáir eru eflaust betur til þess fallnir að leikstýra Hobbitanum og Peter Jackson. Aðdáendur hans um allan heim verða vafalítið ekki sáttir við þessar fréttir og undirbúa að öllum líkindum tölvupóstsendingar eins og síðast þegar kastaðist í kekki milli nýsjálenska leikstjórans og New Line Cinema og fengu það í gegn að stríðsaðilar sömdu um vopnahlé. Erfitt verður að sjá hver ætti að taka við þessu af Jackson en honum verður nokkur vandi á höndum þar sem nafn Peter Jackson er orðið samtengt Hringadrottinssögu, Föruneyti hringsins og Bilbo Baggins.
Jackson leikstýrir ekki Hobbitanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2007 | 20:52
Kompás í klípu
Ágætur maður sagði eitt sinn að stundum skipti það máli á hvaða fjölmiðli blaðamaður starfaði. Sumir væru tilbúnir til að láta allt flakka sökum þess að þeir treystu miðlinum en aðrir þögðu eins og gröfin þegar annar fjölmiðill vildi fjalla um málið.
Fréttaskýringaþátturinn Kompás komst nýlega í fréttirnar(já, þátturinn komst í fréttirnar en ekki beint umfjöllunarefnið) þegar hann fjallaði um Guðmund Jónsson í Byrginu og tælingar hans, óreiðu í fjármálum og þaðan af verra. Kompás er nú komin í smá klípu því nú hefur læknir í Kópavogi stefnt bæði Byrginu og Kompás fyrir meinsæri, já Byrgið og Kompás eru komin undir einn hatt.
Formálann að þessu má að einhverju leyti finna í Blaðinu-blaðinu en Steingrímur Sævarr Ólafsson hefur fært þær uppá mannamál.
Kompás hefur því nú stillt sér upp að hlið hins "gamla" DV sem oftar en ekki þurfti að mæta fyrir dóm sökum ofstækisfullra manna sem vildu ekki láta fjalla um sig og sín spilltu mál...
Bloggar | Breytt 12.1.2007 kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2007 | 20:40
Beckham kveður: Farinn til Bandaríkjanna
David Beckham er hættur að stunda knattspyrnu af viti og er fluttur til Los Angeles. Þar mun hann sinna fyrirsætustörfum ásamt því að æfa og leika með knattspyrnuliðinu L.A Galaxy. Beckham hefur þar með látið undan gagnrýnisröddum sem töldu hann búinn að vera í fótboltaheiminum sökum anna í fyrirsætubransanum.
Beckham verður ekki fátækari fyrir vikið heldur ríkari enda gert mun betri hluti við að fækka fötum og auglýsa rakvélar fyrir Gillette; hann fær í kringum 70 milljónir á viku í laun hjá Galaxy-félaginu og samningurinn tryggir honum 18 milljarða á fimm árum.
Ein manneskja hoppar nú hæð sína af kæti og það er Victoria Beckham en hún hefur staðið í skugganum af manni sínum síðan Spice Girls lögðust af. Nú getur hún farið að einbeita sér að leiklistinni en Victoria var nýlega orðuð við nýja kvikmynd hjá John Travolta sem ku vera framhald af þeirri eitursnjöllu mynd Battlefield Earth...
Varla hefur það verið til að draga vígtennurnar úr Beckham að hann á vini á æðstu stöðum og hefur stórleikarinn Tom Cruise meðal annars fengið hann til að þjálfa krakkana sína. Þá á Beckham líka knattspyrnuskóla í Los Angeles og ætti því að hafa í nógu að snúast nú. Bretarnir eiga hins vegar eftir að ærast af hlátri yfir þessum fáranlegum skiptum tískukóngsins sem verður minnst fyrir asnalegar ákvarðanir og hugmyndum um að hann væri stærri en íþróttin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2007 | 00:18
Velkominn Stóri Bróðir: Bush þráast við
Bush tilkynnir líklega að hann ætli að senda viðbótarlið í suðupottinn Írak. Sagan fer í hringi, Víetnam er að endurtaka og nú er bara bíða, vona og biðja fram að næstu kosningum í USofA sem vonandi verða til þess að horfið verður frá þessum stríðsrekstri. Bandaríkjamenn hafa líka í nógu að snúast, talíbanar eru að sækja í sig veðrið í Afganistan og nánasti samstarfsmaður þeirra, Ísrael, eru sagðir ætla að undirbúa kjarnorkuárás á kjarnorkuver í Íran, horfðu þeir ekki á þáttinn sem vitnað er í hér á undan? Ísraelar gætu nýtt sér að stórveldið er veikt fyrir og getur ekki tekið þá áhættu að missa traustan bandamann með því að lýsa yfir frati á gyðingunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
Bloggvinir
Tenglar
Allt sem skiptir máli
- Fyrir austan tala þeir um...
- Vesturlandinu gerð skil
- Þetta er helst fyrir vestan
- Aðstoðarmaðurinn fyrrverandi
- Misjafnlega gott íslenskt slúður
- Með sunnudagskaffinu
- NFS...líka á netinu
- Morgunblaðið..á netinu
- Fyrir meinlokurnar
- Íslenskar kvikmyndafréttir
- Hin eina og sanna
- Handboltahetjan
- Eðlukóngurinn
- Allt um boltann
- Slúðrið frá Bretlandi
- Fréttaveita af bestu gerð
- Sigursælasta lið í heimi